DANMÖRK
Í September 2013 fórum við fjölskyldan til Danmörkar í viku. Við fórum á Strikið, tívolíið, Lego land og fleira.
Þegar við komum á Strikið var ekkert annað í stöðunni nema að labba um skoða allt sem maður vildi skoða t.d. skó, fatnað, dót, skartgripi og fleira skemmtilegt.
Á myndinni erum við Viktor bróðir hjá á torginu þar sem ráðhúsið er (sést samt ekki vel í okkur Viktor).

Við fórum í tívólíið í Kaupmannahöfn og skemmtum okkur konunglega. Við fórum í mörg tæki og ég prófaði fullt af nýjum tækjum sem voru skemmtileg og hræðinleg.
Á myndinni hér fyrir hliðin á er ég með Loga frænda sem býr í Danmörku en talar samt íslensku.
Á myndinni hér fyrir hliðin á er ég með Loga frænda sem býr í Danmörku en talar samt íslensku.
Þá var haldið í Lego land þar sem margt gerðist. Í Lego landi prófaði ég svaka rússibana, skoðaði fullt af lego byggingum og fór í mörg tæki. Ég vann líka rosa flottan risa stóran bangsa í einhverjum kkörfuboltaleik. Það var eitt tæki sem var rosa gaman fyrir alla fjölskylduna það var slökkvubílarnir! Þeir voru rosa skemmtilegir. Öll fjölskyldan átti að keppa á móti fjórum öðrum fjölskyldum í að keyra "slökkvubíl" fram og slökkva eldinn með vatni og keyra "slökkvubílinn" til baka. Eftir margar umferðir í þetta tæki náðum við að vinna allar fjölskydunar og þá voru allir glaðir og þreyttir!
Á myndinni eru ég, pabbi og Viktor bróðir minn. Við erum með Ameríska ferðamanninum.
Á myndinni eru ég, pabbi og Viktor bróðir minn. Við erum með Ameríska ferðamanninum.
Þá var ferðinni haldið heim á leið og allir sáttir eftir hana. Allir fengu ný föt, dót og ýmislegt annað nýtt og skemmtilegt.
Á myndinni má sjá mig og bróðir minn hann Viktor Bjarka á Leifsstöð að skoða flugvélarnar.
Á myndinni má sjá mig og bróðir minn hann Viktor Bjarka á Leifsstöð að skoða flugvélarnar.