VIGUR
Vigur er lítil eyja í Ísafjarðadjúpi á vestfjörðum. Móðurfjölskldan mín er mikið tengd henni. Núna býr bróðir ömmu minnar þarna (Salvar). Í Vigur var mikið af dýrum en það voru heill hellingur af þeim en nú eru bara kindur. Á hverju sumri eru einhverjir æðarungar sem eru búnir að týna mömmu sinni og þá tökum við þá í lítið "búr" og sjáum um þá, förum með þá út í fjöru, gefum að borða og kannski í smá göngutúr. Þar er mikið af lunda í Vigur og við förum á lundaveiðar, ég hef farið á lundaveiðar en bara til að horfa á. Lundi er herramanns matur og við borðum hann með bestu lyst. Vigur er líka ferðamannastaður og á hverju sumri eru daglegar ferðir út í eyju með ferðamenn sem fara í göngutúr með leiðsögumanni til að fræðast um lundanna, æðarvarpið og fleira. Eftir að túristarnir eru búnir i göngutúrnum er þeim boðið í kaffi, kleinur og kökur, allt heima bakað og fá svo að koma í litla pósthúsið að senda bréf eða kaupa hluti frá eyjunni. Við förum í Vigur á hverju sumri og þá fæ ég að fara með Sirrý frænku að vinna í pósthúsinu og sjá um æðarungana.Ég fæ líka að fara með ömmu minni í dúnleit á sumrin. Hér fyrir neðan er kort af Vigur.