SÁTTAR VIÐ 1. SÆTIÐ
Á Sunnudaginn 1. Des var danskeppni Birnu Björns sem nefnist Dansfárið. Ég og vinkonur mínar ( Sigrún, Guðrún og Ágústa) tókum þátt og stóðum undir nafninu Om mangalam. Þessi keppni var haldinn í gaflaraleikhúsinu í Hafnafirði. Við þurftum að vera í gaflaraleikhúsinu í 4 tíma þangað til við fengum að keppa og vitið bara hvað í 1. sæti lentum við og unnum bikar, gull metalíu og gjafabréf á metro. Til að fagna sigrinum almennilega fórum við stelpurnar eitt kvöldið á skauta saman og svo út að borða á metro með gjafabréfin.
Hérna fyrir neðan má sjá mynddband af dansinum.
Hérna fyrir neðan má sjá mynddband af dansinum.